Fjölskyldufyrirtæki. Tvær kynslóðir af fagþekkingu.English
892 9120Hafðu samband
RAFKRIS · RAFMAGNSÞJÓNUSTAN EHF.

Dyrasímar og dyrasímaviðgerðir

Viðgerðir, endurnýjun og uppsetning dyrasímakerfa fyrir húsfélög, fjölbýli og einbýlishús. Fáðu aðstoð við að velja lausn sem hentar húsinu.

FRÁ EINU TÆKI AÐ HEILU KERFI

Bilaður dyrasími eða nýtt kerfi?

Hljóðið heyrist ekki, bjallan hringir ekki eða hurðin opnast ekki. Við skoðum bilunina og metum hvort hægt sé að gera við kerfið eða hvort endurnýjun sé skynsamleg.

Við höfum sett upp og þjónustað dyrasíma í fjölbýlishúsum, fyrir húsfélög og á einkaheimilum. Reynslan nær bæði til eldri kerfa og nýrra tal- og mynddyrasíma.

Bticino og Siedle dyrasímakerfi

Við höfum reynslu af Bticino kerfum frá SG og Siedle frá Smith og Norland. Við aðstoðum við val, uppsetningu og viðhald og skoðum hvernig nýtt kerfi getur nýst með aðstæðum í húsinu.

Dyrasímar fyrir fjölbýlishús og húsfélög

Fjöldi íbúða, lagnir og óskir íbúa hafa áhrif á val á kerfi. Við förum yfir forsendurnar með húsfélaginu og leggjum til næstu skref.

  • Bilanaleit og viðgerðir á einstökum dyrasímum.
  • Endurnýjun dyraspjalda og innanhústækja.
  • Uppsetning tal- og mynddyrasímakerfa.
  • Ráðgjöf og tilboð í ný kerfi.

Mynddyrasímar og dyrasímar með myndavél

Mynddyrasími gerir þér kleift að sjá hver er við innganginn áður en þú opnar. Við aðstoðum við að velja innanhústæki og dyraspjald sem henta húsinu, hvort sem um er að ræða eina íbúð eða sameiginlegt kerfi fyrir fjölbýli.

Hvað kostar nýtt dyrasímakerfi?

Verðið fer meðal annars eftir fjölda íbúða, vali á tækjum og hvort endurnýja þurfi lagnir. Sendu okkur myndir af núverandi kerfi og fjölda íbúða svo við getum metið umfangið. Tilboð í ný dyrasímakerfi eru án endurgjalds.

Dyrasímaþjónusta á höfuðborgarsvæðinu

Við þjónustum heimili og húsfélög á höfuðborgarsvæðinu. Fyrirtækið er staðsett á Álftanesi en þjónustan nær einnig til Reykjavíkur, Kópavogs, Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness.

Reynsla af stórum og smáum kerfum

Meðal verkefna okkar eru kerfi í Ljósheimum með yfir 50 tækjum, Suðurhvammi og Hafnarfirði. Einnig tökum við að okkur viðgerðir á einstökum dyrasímum.

Dyrasímatæki við inngang húss
ÚR VERKEFNUM OKKAR

Dyrasímar í verki.

Dæmi um dyrasíma og endurnýjun kerfa úr verkefnum okkar.

Eldra dyrasímakerfi og nýtt dyraspjald

Endurnýjun eldra kerfis

Nýtt dyraspjald í stað eldra kerfis.

Uppsettur mynddyrasími

Mynddyrasími innandyra

Innanhústæki með skjá til að sjá hver er við dyrnar.

Dyrasímatæki við inngang

Inngangurinn að heimilinu

Dyrasímatæki við inngang húss.

GOTT AÐ VITA

Algengar spurningar um dyrasíma

Er hægt að gera við gamla dyrasímann?

Oft er hægt að greina bilun og gera við einstaka hluta kerfisins. Sendu okkur myndir af innanhústæki og dyraspjaldi ásamt lýsingu á biluninni, svo við getum metið næstu skref. En við mælum alltaf með að setja nýtt kerfi, eldri kerfin eru flókin og bilunarhneigð.

Þarf húsfélagið að skipta um allt kerfið?

Það fer eftir núverandi kerfi, lögnum og því sem húsfélagið vill fá út úr breytingunni. Við förum yfir aðstæður áður en við mælum með viðgerð eða endurnýjun.

Bjóðið þið upp á mynddyrasíma?

Já. Við höfum reynslu af tal- og mynddyrasímakerfum, meðal annars frá Bticino og Siedle. Við hjálpum þér að velja útfærslu sem hentar húsinu.

Hvað er gott að senda með fyrirspurn?

Fjölda íbúða, heimilisfang, mynd af dyraspjaldinu og innanhústæki, og lýsingu á því sem virkar ekki. Ef þið viljið nýtt kerfi er gott að nefna hvaða eiginleika þið hafið í huga.

Kostar að fá tilboð?

Við bjóðum ókeypis tilboð í ný dyrasímakerfi. Hafðu samband til að fara yfir verkefnið og hvaða upplýsingar þarf fyrir tilboðið.

SEGÐU OKKUR FRÁ VERKINU

Hafðu samband

Skildu eftir skilaboð hér að neðan eða hringdu í okkur.

Reitir merktir * eru nauðsynlegir.

Að okkar reynslu geta góðar myndir af aðstæðum minnkað vinnuna við verkið um 10–90% og þar af leiðandi lækkað reikninginn!

Þá getum við séð hvað við þurfum að taka með okkur áður en við mætum.

Svo endilega taktu þér smá tíma fyrir okkur og sýndu okkur góðar myndir.

Við notum upplýsingarnar þínar til að svara fyrirspurninni. Um persónuvernd.

FYRRI VERKEFNI

Reynsla sem húsfélög geta treyst á

Ljósheimar · yfir 50 tæki

Við endurnýjuðum stórt kerfi með Bticino mynddyrasímum. Samræma þurfti aðgang að íbúðum til að skipta út lögnum á milli þeirra.

Endurnýjun í Hafnarfirði

Við skiptum út dyrasímum og lögnum fyrir nýtt mynddyrasímakerfi í fjölbýlishúsi.

Suðurhvammur og nágrenni

Við tókum við uppsetningu kerfis sem hafði þegar verið keypt og unnum verkið í tímavinnu.

Orð frá viðskiptavinum

Umsagnir um rafmagnsvinnu okkar, áður birtar á eldri vef Rafkris.

„Leifur kom og tók allt rafmagnið í íbúðinni minn í gegn!“
Kristín S. · Brot úr umsögn um rafmagnsvinnu í íbúð
„Bættu við tenglum og hjálpuðu mér að gera íbúðina að draumaeign.“
Inga A. · Brot úr umsögn um endurbætur á raflögnum
HringjaHafðu samband